Skip to main content

Pakkað fyrir trússferð

Hér fyrir neðan er listi sem hafa má til viðmiðunar þegar pakkað er fyrir trússferð þar sem sofið er í skála. Í trússferðum er hægt að vera með ívið meira með sér en í bakpokaferðum, en þó ber að stilla farangri í hóf því trússbílar eru ekki mjög stórir.

Búnaður

  • Bakpoki 30-35 lítra
  • Svefnpoki (ef til vill einnig lakpoki)
  • Hitabrúsi u.þ.b. 1/2 lítra
  • Drykkjarílát
  • Vatnsbrúsi/vatnspoki
  • Skyndihjálparbúnaður s.s. plástur á hælsæri (second skin), teygjubindi og verkjalyf
  • Hreinlætisvörur, s.s. tannbursti, sápa, salernispappír
  • Eldfæri (meðal annars til að brenna notaðan salernispappír)
  • Höfuðljós
  • Handklæði, annaðhvort dry fit handklæði eða taubleyja
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Sólgleraugu
  • Flugnanet
  • Regnjakki og –buxur
  • Húfa og vettlingar
  •  Klæðnaður
  • Mjúkir/hálfstífir gönguskór, vatnsheldir og styðja vel við öklann
  • Auka skóreimar
  • Legghlífar, ef búast má við bleytu eða göngu í snjó
  • Göngubuxur úr gerviefnum
  • Ullarnærföt; langermabolur og síðar buxur
  • Göngusokkar – gott er að vera í þunnum sokkum (liner) undir þykkum sokkum
  • Aukasokkar
  • Bolir, peysur
  • Dún- eða primaluft-úlpa
  • Regnjakki og –buxur
  • Húfa og vettlingar
  • Vaðskór eru nauðsynlegir ef vaða þarf ár (strigaskór/sandalar/neoprene-skór, skórnir verða að vera vel fastir á fætinum

Þótt ferðirnar séu trússferðir er gott að hafa í huga að trússbíllinn er ekki mjög stór.  Því skal takmarka umfang þess farangurs sem tekinn er með. Ágætt er að taka ekki meira með en í hefðbundinni ferð þar sem gengið er með allan farangur. Ganga verður þannig frá öllum farangri að hann blotni ekki þó rigni á h

  • Last updated on .
  • Hits: 383

Pakkað fyrir bakpokaferð.

Hér fyrir neðan er listi sem hafa má til viðmiðunar þegar pakkað er fyrir bakpokaferð þar sem sofið er í tjaldi. Í bakpokaferðum er grundvallarregla að vera með svo léttar byrðar sem mögulegt er, án þess þó að skilja neitt eftir sem nauðsynlegt er að hafa.

Búnaður

  • Bakpoki 65-75 lítra
  • Tjald
  • Dýna
  • Svefnpoki (ef til vill einnig lakpoki)
  • Prímus og pottur (eða jetboil)
  • Hitabrúsi u.þ.b. 1/2 lítra
  • Vatnsbrúsi/vatnspoki
  • Skyndihjálparbúnaður s.s. plástur á hælsæri (second skin), teygjubindi og verkjalyf
  • Hreinlætisvörur, s.s. tannbursti, sápa, salernispappír
  • Eldfæri (meðal annars til að brenna notaðan salernispappír)
  • Höfuðljós
  • Handklæði, annaðhvort dry fit handklæði eða taubleyja
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Sólgleraugu
  • Flugnanet
  • Drykkjarílát, diskur, hnífapör (allt úr plasti eða öðru léttu efni)
  • Litlir plastpokar fyrir rusl
  • Göngustafir, ef vill
  • Mjúkir/hálfstífir gönguskór, vatnsheldir og styðja vel við öklann
  • Auka skóreimar
  • Legghlífar, ef búast má við bleytu eða göngu í snjó
  •  Klæðnaður
  • Göngubuxur úr gerviefnum
  • Ullarnærföt; langermabolur og síðar buxur
  • Nærföt, ekki bómull
  • Bolur, flíspeysa
  • Göngusokkar – gott er að vera í þunnum (liner) undir þykkum sokkum
  • Aukasokkar
  • Dún- eða primaluft-úlpa
  • Regnjakki og –buxur
  • Húfa og vettlingar
  • Vaðskór eru nauðsynlegir ef vaða þarf ár (strigaskór/sandalar/neoprene-skór, skórnir verða að vera vel fastir á fætinum)
  • Hversu mikið er haft með af aukafatnaði fer eftir lengd ferðar. Ekki gera ráð fyrir að skipta um föt daglega, þá verða byrðarnar of þungar.
  • Gallabuxur og annar bómullarfatnaður er bannaður á fjöllum. Ef slíkur fatnaður blotnar er hann lengi blautur og verður mjög kaldur.
  • Húfa og vettlingar

 

  • Last updated on .
  • Hits: 403

Pakkað fyrir dagsferð

Hér fyrir neðan er listi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina:

Búnaður

  • Bakpoki 30-35 lítra
  • Kalt vatn á vatnsbrúsa/vatnspoka
  • Heitt vatn/kakó/te/kaffi á brúsa
  • Orkuríkt nesti
  • Snarl, s.s. hnetur/rúsínur
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Sólgleraugu
  • Flugnanet
  • Fatnaður
  • Göngubuxur úr gerviefnum, ekki gallabuxur
  • Bolur/peysa/soft shell-jakki – ekkert úr bómull
  • Göngusokkar, gjarna þunnir (liner) undir og þykkir utan yfir
  • Mjúkir/hálfstífir gönguskór, vatnsheldir sem styðja vel við öklann
  • Auka skóreimar
  • Legghlífar, ef búast má við bleytu eða snjó
  • Regnjakki og –buxur
  • Húfa og vettlingar

 

  • Last updated on .
  • Hits: 405