Pakkað fyrir dagsferð
Hér fyrir neðan er listi sem hafa má til viðmiðunar um hvað er gott að hafa með sér í dagsferðir og hvernig gott er að búa sig fyrir ferðina:
Búnaður
- Bakpoki 30-35 lítra
- Kalt vatn á vatnsbrúsa/vatnspoka
- Heitt vatn/kakó/te/kaffi á brúsa
- Orkuríkt nesti
- Snarl, s.s. hnetur/rúsínur
- Sólarvörn og varasalvi
- Sólgleraugu
- Flugnanet
- Fatnaður
- Göngubuxur úr gerviefnum, ekki gallabuxur
- Bolur/peysa/soft shell-jakki – ekkert úr bómull
- Göngusokkar, gjarna þunnir (liner) undir og þykkir utan yfir
- Mjúkir/hálfstífir gönguskór, vatnsheldir sem styðja vel við öklann
- Auka skóreimar
- Legghlífar, ef búast má við bleytu eða snjó
- Regnjakki og –buxur
- Húfa og vettlingar
- Last updated on .
- Hits: 544