Gengið frá skilti á bílastæði við upplýsingahús á Vatnsskarði (65°33,71- 13°59,56) að krossgötum sunnan Mjóadalsvarps.
Stikuð hringleið er um Stórurð og þar er kassi með gestabók og stimpli. Göngufólk er hvatt til að halda sig á merktum leiðum.
Hægt er að velja nokkrar leiðir til baka úr Stórurð t.d. niður á bílaplan á Vatnsskarðsvegi (65°33,71- 13°59,56) og einnig er hægt að ganga til Njarðvíkur að þjóðvegi (65°33,05-13°58,24).
Best er að fara í Stórurð eftir miðjan júlí og fram í miðjan september.
- Vegalengd og hækkun: 15 km. og 430 m. hækkun
- GPS hnit: (N65°30,88-W13°59,79)