Gengið frá skilti sem er við veg nr. 917 (áður en haldið er upp á Hellisheiði) við Biskupshól (N65°42.52-W14°24.41). Þaðan er svo gengið að Keri, sem er forn verstöð og út á Landsendahorn. Þaðan er afar fallegt útsýni yfir Móvíkur, tvær víkur, sem eru næst fyrir utan Landsenda og mynda stórar geilar inn í strandfjöllin. Ofan við þær eru um 2-300 m há björg og snarbrattar skriður, Móvíkurflug. Bergið í þeim er aðallega líparít sem skartar öllum regnbogans litum. Hólkur með gestabók og stimpli er við enda gönguleiðar.
- Vegalengd: 5 km
- GPS hnit: (N65° 43.352-W14°23.300)