Skip to main content

Stuðlagil

Á Jökuldal á Fljótsdalshéraði er að finna náttúruperlu sem lengi var lítt þekkt. Hún kom ekki almennilega í ljós fyrr en eftir að Kárahnjúkavirkjun var tekin í notkun og vatnsmagnið í Jökulsá á Dal, eða Jöklu, snarminnkaði. Þessi perla er sá hluti Jökulsárgljúfurs sem nefnist Stuðlagil. Nafnið er dregið af því að þar er að finna eina stærstu og fallegustu stuðlabergsmyndun á Íslandi.

Það eru tvær leiðir í boði til þess að skoða gilið. Annars vegar er hægt að keyra suður af Hringveginum (vegi nr. 1) rétt innan við Skjöldólfsstaði, inn á veg númer 923. Þaðan eru um 19 kílómetrar að bænum Grund en þar eru bílastæði og merktur stígur að gilinu (gangan er um 250 metrar, eða 5 mínútur). Þar er gott útsýni niður í gilið og út eftir því, og fjölbreytt stuðlabergið nýtur sín. Þó gangan sé stutt þarf að fara varlega því stígurinn liggur að hluta í miklum bratta.

Til þess hins vegar að komast ofan í gilið, niður að ánni, þarf að fara að gilinu austan megin. Þá er keyrt að brúnni hjá bænum Klausturseli, einnig eftir vegi nr. 923 um 14 kílómetra frá Hringveginum. Hafa skal í huga að það má ekki að keyra yfir brúna heldur leggja á bílastæði vestan megin við hana. Þaðan er gengið yfir brúna og eftir slóða (rúmlega 5 kílómetra) þangað sem hægt er að komast niður í gilið. Hafa ber í huga að klettar og steinar geta verið blautir og þar af leiðiandi mjög sleipir. Á leiðinni, um 2 kílómetra frá brúnni er tignarlegur foss, Stuðlafoss, sem fellur fram af þverhníptu stuðlabergi. Þessi gönguleið er rúmlega 10 kílómetrar samanlagt, og þegar gert er ráð fyrir að stoppað sé við fossinn og gilið sjálft, gæti hún tekið 3 tíma.

Nauðsynlegt er að hafa í huga, sama hvora leiðina fólk velur að fara, að náttúra svæðisins er viðkvæm. Stuðlagil er nýr áfangastaður og aðsóknin er mikil en uppbygging skammt á veg komin. Gestir eru því hvattir til þess að bera virðingu fyrir umhverfinu, ganga snyrtilega um og halda sig alltaf innan merktra gönguleiða. Á tímabilinu 1. maí - 10. júní verpa fjölmargar heiðagæsir á svæðinu og er mikilvægt að raska ekki ró þeirra.

 

  • Last updated on .
  • Hits: 1930