Skip to main content

Grjótgarður við Hjarðarhaga

Stutt ganga en nokkuð brött. Bílum er lagt við vegamótin að Hnefilsdal. Gengið frá skilti við þjóðveg 1 stikaða leið upp með Sauðá upp á brún að Grjótgarðinum. Gengið út með Grjótgarðinum uns komið er að hólknum þar sem er gestabók og stimpill. Haldið áfram í átt að Teigará út að vörðu og síðan aðeins til baka og niður stikaða reiðgötu um Hestagilið. Ekki er vitað hvaða tilgangur var með hleðslu Grjótgarðsins, en sennilegt er að hann hafi verið aðhald fyrir sauðfé og jafnvel svín.

  • Vegalengd og hækkun: 7,6 km. og 300 m. hækkun
  • GPS hnit: (N65°21.391-W15°00.061)

Grjótgarður er í Hjarðarhagaheiði, liggur frá efsta fossi í Sauðá (Urðarfossi) norðaustur heiðina í átt að Teigará, sem er um 3-4 km. Garðurinn er hruninn að mestu en þó vel greinilegur,einnig sjást hlutar garðsins við Teigará neðan vegar.
Gönguleiðin að Grjótgarðinum er frá vegamótum Hnefilsdalsvegar 924 innan Hjarðarhaga og er bílum lagt við vegamótin neðan vegar nr.1.. Farið er í gegnum hlið á girðingu ofan vegar og stefnt á neðsta foss í Sauðá, Sitjanda sem myndin er af, síðan upp með Sauðánni upp á dalbrún þar til komið er að Grjótgarðinum. Gengið er meðfram honum þar til staukur FFF með gestabókinni kemur í ljós, en grjótgarðurinn heldur áfram norðaustur heiðina. Frá stauknum er gönguleiðin eftir merktum reiðgötum niður Hestagilið, en þar upp voru reiðgötur til Vopnafjarðar, enda var það verslunarstaður Jökuldælinga fyrr á öldum. Reiðgötunar voru á vatnaskilum norður heiði, austan Sandfells og komu inn á þjóðleiðina sem er frá Fossvöllum.
Ekki er kunnugt um hver tilgangur var með hleðslu Grjótgarðsins, en sennilegt er að hann hafi verið aðhald fyrir sauðfé eða jafnvel svín.

  • Last updated on .
  • Hits: 1847