Bærinn var byggður úr landi Hákonarstaða 1846 í 540 m hæð ca 5 1/2 km norður af Hálsi. Býlið var fyrst kallað Víðirdalssel. Frumbyggjar voru Vigfús Jósafatsson frá Hömrum í Reykdælahreppi og Rósa Jónsdóttir ættuð úr Öxnadal. Búið var í Víðirhólum til 1905 en þá hafði jörðin rýrnað svo af uppblæstri og ágangi af völdum vikursins að ekki þótti búandi þar lengur. Byggð á Víðirhólum lá þó niðri í nokkur ár eftir Öskjugosið. Tæplega 1 km sunnan við bæjarstæðið er Víðirhólarétt, fjallskilarétt (N65°13.63 - W15°22.71), hlaðin úr grjóti. Hún var byggð um aldamótin 1900 og var notuð í rúm 20 ár.
(9) GPS hnit (N65°14.09 - W15°22.46)
...