Í 542 m hæð við Ánavatn í landi Brúar rúma 2 km frá Grunnavatni. Þorsteinn Jökull Magnússon var þjóðsagnapersóna er bjó á Brú á seinni hluta 15. aldar Hann var sagður hafa búið a.m.k. eitt ár á Netseli er hann flúði til fjalla undan “pestinni”. Gamlar rústir eru á tanga sem skagar út í Ánavatn að vestan. Sumar eru neðan gjóskulags frá 1477 en aðrar eru frá 18. öldinni og þær yngstu tengjast eflaust ábúðinni á Grunnavatni. Nokkrar heimildir eru fyrir því að fólk kenndi sig við Netsel þótt ekki sé vitað um reglulega ábúð þar.
(4) GPS hnit (N65°12.68 – W15°32.16)
...